Vinnustaðurinn rokkar
Borðaði yfir mig af grjónagraut í hádeginu! Vildi svo sannalega að einhver ykkar hefði setið þarna með mér. Svo skemmtilegar umræður við borðið!! Vissuð þið að sólskinsstundir í Reykjavík mældust aðeins 1,3 og er það tæpum 11 stundum minna en í meðalári. Sólskinsstundir hafa nokkrum sinnum verið álíka fáar í Reykjavík í desember, síðast 1992. Og ekki sást til sólar á Akureyri enda ekki von á þessum árstíma ha ha ha ha hhhmmmm!!! Meðalhiti í Reykjavík var -0,2 stig og er það í meðallagi, en -1,5 stig á Akureyri og er það 0,4 stigum ofan meðallags. Í Akurnesi var meðalhitinn-0,7 stig og -6,6 stig á Hveravöllum. ........og svo í lokin til að kæta alla uppúr skónum úrkoma í Reykjavík mældist 86 mm og er það tæpum 10% yfir meðallagi........ jæja börnin góð...Gaman að því!!!!!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home